náttúruleg ásýnd

Frá sendinni fjörunni við Hvalfjörðinn er að finna móa, mela, berjaling og blóðberg sem teygir sig upp grasivaxna hlíðina á tignarlegu Eyrarfjalli.

Þegar kemur að hönnun byggðar sem brýtur gróið land eins og í þessu verkefni er mikilvægt að huga að umhverfinu og hefur mikil áhersla verið lögð á virðingu fyrir náttúrunni á öllum stigum.

Leitast skal við að hönnun bygginga falli sem best að umhverfinu, landhalla og landslagi.

Klæðningar húsa skulu vera að mestu leyti úr timbri og í náttúrulegum litum. Leyfilegt er að hluti útveggja sé steinsteyptur og þá sjónsteypa, ómáluð eða máluð í náttúrulegum litum.

Þakform skulu vera skv. skilmálum deiliskipulags, hallandi eða einhalla og klædd sömu viðarklæðningu og lit og klæðning byggingar eða úthagatorfi.

Leitast skal eftir því að allt efni og frágangur taki mið af umhverfisvernd nútímans.