kyrrð í sveit

Í einungis um 30 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík hefur verið skipulagt svæði með 48 eignarlóðum í landi Eyrar í Kjós.

Staðsetningin mætir þörfum þeirra sem kjósa að búa í nálægð við náttúruna og njóta sveitakyrrðarinnar, stutt frá allri helstu þjónustu.

Kjósarhreppur í Hvalfirði er friðsælt samfélag sem býður meðal annars upp á fjölbreytt útivistarsvæði og gönguleiðir, hægt er að kaupa eðal nautakjöt á Hálsi, baða sig í Hvammsvík og veiða í Meðalfellsvatni, að ógleymdri Laxá í Kjós sem er ein af fegurstu laxveiðám landsins! Á hverju sumri er hátíðin Kátt í Kjós haldin fyrir alla fjölskylduna og á aðventunni býðst fjölskyldum að finna sér jólatré í skóginum að Fossá.

Verkefnið er í tveimur áföngum og sala er hafin á 18 lóðum fyrir neðan Hvalfjarðarveg, þar af eru 6 sjávarlóðir. Lóðirnar fyrir ofan aðalveg verða boðnar til sölu árið 2026.

Íbúar munu fá einstakt tækifæri til að upplifa ró og frið náttúrunnar, finna fyrir frelsinu sem fylgir því að búa í sveit og taka þátt í því að byggja upp gott samfélag frá grunni.

Landeigendur á Eyri í Kjós eru hjónin Sverrir og Ólöf. Jörðin var áður í eigu móðurfjölskyldu Sverris, var hann þar í sveit á sumrin frá 6 ára aldri og þekkir nánast hverja þúfu og hól. Nokkuð er liðið síðan búskapur var á bænum en þar var stundaður kúa-, hænsna- og fjárbúskapur frá fyrri hluta síðustu aldar.

Hugmynd kviknaði um að skipuleggja hluta jarðarinnar fyrir dreifða byggð og var hafist handa við þróun verkefnisins um mitt árið 2023. Á upphafsstigum var ákveðið að fá að borðinu arkitektastofuna KRADS og nálgast hugmyndafræðina með umhverfið og nágrennið í forgrunni. Náið samstarf við KRADS og Kjósarhrepp hefur leitt af sér ásýnd og skipulag sem landeigendur hafa fulla trú á að styrki það blómlega samfélag sem fyrir er í sveitarfélaginu.

Bæjarstæðið á Eyri hefur fengið upplyftingu og mun ferðaþjónusta opna þar í sumar. Er það von Ólafar og Sverris að það líf sem sú starfsemi mun leiða af sér muni koma samfélaginu í Kjós til góða þegar farið verður af stað með ýmisskonar viðburði sem greint verður frá síðar.